Innlent

Brotist inn í starfsmannafélag Alcoa

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Brotist var inn í Sómasetrið, starfsmannafélag Alcoa-Fjarðaráls á Reyðarfirði í nótt. Sjónvarpi og stúdíó ljósum var stolið þaðan og er málið í rannsókn lögreglu.

„Við munum upplýsa ykkur þegar við vitum meira. Rétt er að geta þess að við erum að sjálfsögðu með tryggingar,“ segir í tölvupósti sem starfsmenn álversins fengu sendan til sín laust fyrir klukkan átta í morgun.

Þá er fólki bent á að hafa samband við lögregluna á Eskifirði, hafi það einhverjar upplýsingar undir höndum.

Starfsmannafélagið Sómi á ekki sjö dagana sæla því félagið vinnur nú að því að endurheimta átta milljón króna fjárdrátt gjaldkera félagsins, eins og greint var frá á Vísi í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×