Skoðun

Betri Kópavogur

Pétur Hrafn Sigurðsson skrifar
Það er gott að búa í Kópavogi, þess vegna bý ég þar. Það þýðir ekki að hvorki megi né þurfi að bæta bæinn okkar, bæta þjónustu við íbúana, bæta skólastarf og bæta húsnæðismálin svo örfá dæmi séu tekin. Markmiðið er að gera Kópavog að betri og öflugri bæ.

Húsnæðismálin eru mikilvægt úrlausnarefni. Nauðsynlegt er að Kópavogur stígi inn og fjölgi búsetuúrræðum fyrir ungt fólk sem og félagslegum íbúðum. Þróunin á húsnæðismarkaði höfuðborgarsvæðisins er ekki ásættanleg þar sem lífeyrissjóðir og fjárfestingasjóðir eru að kaupa upp hundruð íbúða. Ungt fólk má sín lítils í slíkri samkeppni. Það er mjög brýnt að ganga strax í þessi mál. Það þarf að endurreisa með einum eða öðrum hætti húsnæðiskerfi sem núverandi ríkisstjórnarflokkar brutu niður á sínum tíma. Andstaða núverandi bæjarstjóra við öflugan leigumarkað hefur komið fram, en mikilvægt er að þau sjónarmið verði ekki ráðandi í Kópavogi eftir kosningar í vor.

Íþrótta- og tómstundamál eru meðal þess sem sveitarfélagið á að standa myndarlega að. Það þarf að bæta og skipuleggja íþrótta- og tómstundastarfið með hagsmuni iðkenda í huga, sérstaklega þeirra sem yngri eru. Öflugt íþróttabandalag í Kópavogi tel ég að geti orðið íþróttastarfinu til mikils framdráttar.

Íþróttir og tómstundir snúa ekki einvörðungu að börnum og unglingum. Þar koma allir aldurshópar við sögu. Eldri borgarar í Kópavogi hafa verið virkir á þeim vettvangi og er það vel. Til að nýta enn betur þekkingu þeirra og reynslu tel ég að koma eigi á fót öldungaráði í bænum. Eldri borgarar myndu þar vera umsagnaraðilar og ráðgjafar um hvaðeina sem lýtur að aðstæðum þessa hóps í Kópavogi. Það þarf svo sannarlega að bæta þjónustu við þennan hóp íbúa í bænum.

Undirstaða undir allar góðar hugmyndir fyrir betri Kópavog til framtíðar er að ná tökum á fjármálum Kópavogsbæjar sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa skilið eftir í afar slæmu ástandi. Skuldir Kópavogsbæjar nema nú um 40 milljörðum sem er afleitur árangur.

Nýtt fólk sem hefur gefið kost á sér á lista jafnaðarmanna í Kópavogi er tilbúið til að gera Kópavog að betri bæ.

Lesendur Vísis geta sent inn greinar á greinar@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×