Tuttugu og fimm féllu á álagsprófinu Þýskaland og AP / Óli Kristján Ármannsson skrifa 27. október 2014 07:00 Fólk á gangi fram hjá útibúi bankans Monti dei Paschi di Siena í Róm. Bankinn er sá þeirra þrettán banka sem Seðlabanki Evrópu segir vanbúna til að standast framtíðaráföll, sem verst stendur. Alls féllu 25 bankar á prófinu en tólf hafa þegar barið í brestina. Fréttablaðið/AP
Þrettán af 130 stærstu bönkum Evrópu vantar samtals 10 milljarða evra (1.530 milljarða króna) til að geta tekist á við framtíðaráföll. Í kynningu á álagsprófum Seðlabanka Evrópu í gær sögðu fulltrúar bankans að meiri kröfur hefðu verið gerðar en í sambærilegum yfirferðum á fjárhag fjármálastofnana árið 2011 og 2010. Í þeim prófum voru heilbrigðisvottorð gefin bönkum sem síðar þurftu á aðstoð að halda. Seðlabanki Evrópu segir að 25 bankar hafi þurft styrkari eiginfjárstöðu. Af þeim hafa tólf þegar komið á úrbótum á þeim mánuðum sem prófanir bankans hafa staðið. Þeir bankar eru sagðir hafa aflað fjármuna með því að gefa út nýtt hlutafé, eða með því að selja frá sér áhættusamar fjárfestingar eða lánastarfsemi. Bankarnir þrettán sem eftir standa hafa hálfan mánuð til þess að leggja fyrir Seðlabanka Evrópu áætlun um hvernig þeir ætli að styrkja eiginfjárgrunninn og allt að níu mánuði til að hrinda þeim áætlunum í framkvæmd.Daniele Nouy kynnir niðurstöður álagsprófana á evrópskar fjármálastofnanir í Frankfurt í Þýskalandi í gær.Fréttablaðið/APÁlagsprófið á að tryggja að bankar, sem sumir hverjir hafa verið tregir til útlána vegna vondra fjárfestinga sem hafa íþyngt þeim, verði reiðubúnir til þess að leggja lið og hafi bolmagn til útlána þegar evrópskt efnahagslíf tekur við sér að nýju. Bankar sem standa höllum fæti eiga ekki að standa efnahagsbata fyrir þrifum. Í athugun sinni kannaði Seðlabanki Evrópu virði eigna bankanna og lagði fyrir þá álagspróf þar sem reynt var að greina hvernig þeim myndi vegna í efnahagssamdrætti.Flestir, eða fjórir, bankanna sem enn standa höllum fæti eru ítalskir. Tveir bankanna eru grískir, tveir frá Slóveníu og svo er einn frá Kýpur, einn fransk-belgískur, einn austurrískur, einn írskur og einn frá Portúgal. Bankinn sem mest hallar á er ítalski bankinn Monte dei Paschi di Siena, en hann er sagður þurfa að styrkja eiginfjárstöðu sína um 2,11 milljarða evra (323 milljarða króna). Fimm bankanna eru sagðir geta komist fyrir vanda sinn með því að halda sig við umbótaáætlanir sem þegar hefur verið hrint í framkvæmd. Það eru Eurobank og Þjóðarbankinn í Grikklandi, Nova Ljubljanska Banka og Nova Kreditna í Slóveníu og Dexia í Belgíu. Flesta hinna bankanna vantar undir einum milljarði evra (153 milljarðar króna) og í nokkrum tilvikum undir 200 milljónum evra (30,6 milljörðum króna). Fjórða næsta mánaðar tekur Seðlabanki Evrópu við fjármálaeftirliti í Evrópu.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira