París Norðursins sigurstrangleg í Tékklandi Heimir Már Pétursson skrifar 9. júlí 2014 19:11 Kvikmyndin París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson fær mjög góða dóma eftir heimsfrumsýningu á kvikmyndahátíð í Tékklandi. Hafsteinn Gunnar sagður í hópi bestu leikstjóra Evrópu.
Kvikmyndin París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson fær frábæra dóma eftir heimsfrumsýningu á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Tékklandi í gær. Gagnrýnandi telur myndina líklega til að hljóta aðalverðlaun hátíðarinnar. París Norðursins var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni á Karlovy Vary í Tékklandi í gærkvöldi, en hátíðin er sögð vera virtasta kvikmyndahátíðin í austur Evrópu. Gagnrýnandi kvikmyndavefsins Screen Daily lýsir mikilli hrifningu á þessarri annarri kvikmynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar í fullri lengd. Hann segir Hafstein Gunnar einn af bestu leikstjórum ungu kynslóðarinnar í Evrópu. Mynd hans sé afhjúpandi, skemmtileg og vitsmunaleg. Fyrri kvikmynd Hafsteins Gunnars í fullri lengd, Á annan veg, fékk einnig góðar viðtökur og var nýlega endurgerð í Bandaríkjunum undir heitinu Prince Avalanche með stórleikurunum Paul Rudd og Emile Hirsch í aðalhlutverkum. Björn Thors og Helgi Björnsson fara með aðalhlutverkin í París norðursins sem fjallar um samband feðga í litlu þorpi á Vestfjörðum, þar sem ýmislegt fer úr skorðum í lífi aðalsöguhetjunnar. Gagnrýnandi Screen Daily segir myndina hljóta að koma til greina til aðalverðlauna kvikmyndahátíðarinnar í Tékklandi.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent Fleiri fréttir Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Sjá meira