Lífið

Kate Moss daðrar við prinsinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það fór vel á með ofurfyrirsætunni Kate Moss og Vilhjálmi Bretaprins í kvöldverði til heiðurs The Royal Marsden-sjúkrahússins í Windsor-kastala í gærkvöldi.

Daily Mail gefur til kynna að fyrirsætan hafi daðrað við prinsinn og birtir myndband af kynnum þeirra sem fylgir hér með fréttinni.

Kate og Vilhjálmur spjölluðu í smá stund og virtist módelið vera afar feimið og brosti út að eyrum.

„Hvar er eiginkona þín?“ spurði Kate og vísaði til hertogaynjunnar Kate Middleton. Þegar prinsinn sagði að hún væri ekki með honum brosti Kate breitt og hváði það vera synd og skömm.

Dæmi nú hver fyrir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×