Sport

Fær 14 milljarða króna fyrir sex ára samning

Show me the money !! CK7 er í góðum málum.
Show me the money !! CK7 er í góðum málum. vísir/getty
Leikstjórnandi San Francisco 49ers, Colin Kaepernick, er búinn að ná samkomulagi við félagið um stærsta samning í sögu NFL.

Nýi samningurinn er til sex ára eða til ársins 2020. Á þessum sex árum mun Kaepernick fá rúma 14 milljarða íslenskra króna ef allt gengur að óskum.

Ýmis uppsagnarákvæði og annað er í þessum samningi eins og gengur og gerist en leikstjórnandinn er öruggur með að fá 7 milljarða. Báðar þessar tölur eru met í deildinni.

Árslaunin eru um 2,4 milljarðar króna og hann ætti að eiga ofan í sig og á með þessi laun. Gamli samningurinn hefði fært honum 110 milljónir króna í ár á þessu ári. Hann hækkar því í árslaunum um litla 2,3 milljarða króna.

Kaepernick hefur aðeins verið aðalleikstjórnandi 49ers í eitt og hálft ár. Fyrsta árið fór hann með liðið alla leið í Super Bowl þar sem liðið tapaði. Í fyrra komst liðið í undanúrslit.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×