Erlent

„Súkkulaðikonungurinn“ talinn sigurstranglegastur

Bjarki Ármannsson skrifar
Petró Porósjenkó er talinn sigurstranglegastur.
Petró Porósjenkó er talinn sigurstranglegastur. Vísir/AFP
Nú á sunnudaginn eiga forsetakosningar að fara fram í Úkraínu. Aðskilnaðarsinnar í austurhluta landsins vilja koma í veg fyrir að kosningarnar heppnist og yfirvöld hafa játað að mögulega verði ekki hægt að halda atkvæðagreiðslu í þeim héruðum sem átökin standa sem hæst.

Í samantekt BBC um kosningarnar er milljarðamæringurinn Petró Porósjenkó talinn sigurstranglegastur. Porósjenkó er sælgætisframleiðandi sem hefur hlotið viðurnefnið „súkkulaðikonungurinn“ fyrir árangur sinn á því sviði. Hann er eigandi fréttastöðvarinnar 5 Kanal TV og nýtur stuðnings fyrrum innanríkisráðherra Úkraínu, Júrí Lútsenkó, og hnefaleikakappans og andspyrnuhetjunnar Vítalíj Klítsjkó.

Porósjenkó vill halda Úkraínu sem sameinuðu ríki en þó veita héruðum þess meira sjálfstjórnarvald. Þetta er talið miða að því að draga úr spennu í héruðum á borð við Dónetsk og Lúhansk þar sem blóðug átök standa enn yfir.

Júlía Tímósjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, fylgir fast á hæla Porósjenkó. Hún var fangelsuð í stjórnartíð Viktor Janúkóvitsj, forseta landsins sem steypt var af stóli nú í febrúar. Í aðdraganda kosninganna hefur hún kallað Vladímír Pútín Rússlandsforseta „óvin númer eitt“ og hefur lofað að gera þjóð sína óháðari Rússum, þá sérstaklega hvað varðar orkumál.

Fyrir utan Porósjenkó og Tímósjenkó voru 21 sem buðu sig fram í kosningunum, en fimm hafa dregið framboð sitt til baka. Meðal þeirra sem enn taka þátt má nefna Dmítró Jarosj, leiðtoga hins þjóðernissinnaða Right Sector flokks, sem eftirlýstur er í Rússlandi fyrir hryðjuverkastarfsemi.


Tengdar fréttir

Umdeild atkvæðagreiðsla í Úkraínu

Aðskilnaðarsinnar í Donetsk og Luhansk standa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Austur-Úkraína eigi að fá að stjórna sér sjálf.

Hnefaleikakappinn Klitskó dregur framboð sitt til baka

Vitali Klitskó, einn helsti leiðtogi mótmælenda í Úkraínu og fyrrum heimsmeistari í hnefaleikum, hefur dregið framboð sitt til forseta til baka. Hann segir að þess í stað muni hann styðja við bakið á Petro Porosjenkó sem nýlega boðaði framboð sitt.

Rússar vilja ekki frekari innlimun

Uppreisnarmenn í Donetsk og Luhansk lýsa yfir sjálfstæði, en fá engar undirtektir hjá rússneskum stjórnvöldum.

Pútín vill Úkraínuhermenn burt frá A- og S-hluta Úkraínu

Bráðabirgðaforseti Úkraínu hefur hætt við áætlanir um að leggja af herskyldu. Moskvustjórn hefur gagnrýnt framgöngu Úkraínuhers í austurhluta landsins. Í símtali við Þýskalandskanslara sagði Pútín ríða á brotthvarfi hermanna þaðan.

Pútín varar við borgarastríði í Úkraínu

Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir að Úkraína rambi nú á barmi borgarastyrjaldar, eftir að úkraínski herinn lagði til atlögu við aðgerðarsinna í austurhluta landsins sem hafa haft nokkrar stjórnarbyggingar á sínu valdi síðustu daga. Óstaðfestar fregnir herma að brynvarðir bílar, merktir með rússneska fánanum, hafi einnig sést á svæðinu.

Stigvaxandi átök í Úkraínu

Atlantshafsbandalagið ákvað í dag að senda aukinn herafla til austur Evrópu vegna stigvaxandi átaka í Úkraínu. Vladimír Pútín rússlandsforseti segir að Úkrína rambi á barmi borgarastyrjaldar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×