Tónlist

Twerka burt ástarsorgina

„Stundum í lífinu þarf maður bara að dansa til að gleyma þessum gaurum. Við vinkonurnar eigum það til dæmis til að „twerka“ óeðlilega mikið þegar einhver okkar er í ástarsorg. Það er besta meðalið,“ segir söngkonan Unnur Eggertsdóttir um nýjasta lag hennar, Dansa til að gleyma þér, sem kemur út í dag en tökur á myndbandinu hefjast fljótlega.

Unnur fagnar 22. ára afmæli sínu í dag og hefur hún í nægu að snúast á afmælisdaginn. „Ég fer í viðtöl á FM957, Kananum, Bylgjunni og Rás 2 og reyni að vera hress í morgunsárið. Kl 15:20 fer ég svo í HM stofuna til Björns Braga og spjalla aðeins um mótið, sem ég er búin að horfa furðumikið á. Fótbolti er ekki svo leiðinlegur eftir allt saman. Síðan skála ég við vini og sé hvert kvöldið leiðir mig.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.