Lífið

Hljómsveitir tilkynntar á Ja Ja Ja Nordic

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Emiliana Torrini
Emiliana Torrini
Búið er að tilkynna hvaða hljómsveitir munu troða upp á Ja Ja Ja Nordic-tónleikahátíðinni í Lundúnum í nóvember en hátíðin er helguð nýrri tónlist frá Norðurlöndunum.

Það eru söngkonan sívinsæla Emilíana Torrini, ljúfu gítarplokkararnir í Low Roar og rafrokkararnir í Fufanu.

Þetta er í annað sinn sem Ja Ja Ja-hátíðin er haldin í Lundúnum en í fyrra var hún haldin í fyrsta skipti á klúbbnum fræga Roadhouse.

Þá voru það gleðigjafarnir í múm sem komu fram ásamt dönsku sveitinni Mew og sænska sveitin The Shout Out Louds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×