Lífið

Vill kærasta sem getur prumpað fyrir framan hana

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jennifer Lawrence.
Jennifer Lawrence. vísir/getty
Leikkonan Jennifer Lawrence prýðir forsíðu Vanity Fair og opnar sig ekki aðeins um nektarmyndalekann heldur einnig um hvernig draumamaðurinn hennar ætti að vera.

Jennifer hætti með kærasta sínum til þriggja ára, Nicholas Hoult, í ágúst á þessu ári og fregnir herma að hún sé nú að deita Coldplay-söngvarann Chris Martin.

„Mig langar að vera með einhverjum sem er með sama smekk á raunveruleikasjónvarpsefni og ég,“ segir Jennifer í samtali við tímaritið en uppáhaldsþættirnir hennar eru Shark Tank, Intervention, Dance Moms og Real Housewives. Hún vill ekki byrja með slagsmálahundi.

„Ég þoli ekki slagsmál og mér finnst fólk sem elskar að rífast mest pirrandi fólk í heiminum,“ segir Jennifer.

„Mig langar í einhvern sem er ekki hræddur við að prumpa fyrir framan mig,“ bætir leikkonan við.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×