Handbolti

Vilhjálmur Geir aftur á Nesið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vilhjálmur er kominn aftur til Gróttu.
Vilhjálmur er kominn aftur til Gróttu. mynd/facebook-síða gróttu
Vilhjálmur Geir Hauksson hefur skrifað undir lánssamning við handknattleiksdeild Gróttu og mun leika með liðinu í Olís-deildinni á næsta tímabili.

Vilhjálmur er uppalinn hjá Gróttu en hann lék með Haukum á síðasta tímabili og varð meistari með liðinu í vor.

Vilhjálmur, sem leikur í vinstra horninu, skoraði 35 mörk fyrir Hauka í fyrra.

Grótta er nýliði í Olís-deildinni en liðið vann 1. deildina með yfirburðum á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×