Lífið

Miley Cyrus gengur lengra - Kviknakin og sýnir allt

Margrét Hugrún Gústavsdóttir skrifar
Miley Cyrus hefur hrist rækilega upp í slúðurpressunni eftir að hún ákvað að segja skilið við Hannah Montana barnastjörnu ímyndina.

Henni finnst til að mynda ekkert stórmál að fækka fötum fyrir myndavélar og hefur nú þegar verið gagnrýnd mikið fyrir striplið.

Meðal annars þegar hún sat kviknakin á járnkúlu í myndbandinu við lagið Wrecking Ball og þegar hún sat fyrir í erótískri myndatöku með hinum umdeilda ljósmyndara Terry Richardson.

Hér er myndin umtalaða.
Nú slær daman fyrri nektarmet því í næsta hefti af V Magazine munu birtast polaroid myndir sem vinur hennar, Cheyne Thomas, tók meðan þau voru á tónleikaferðalagi í fyrra til að fylgja eftir plötu hennar Bangerz.

V Magazine keypti myndasyrpuna og munu herlegheitin birtast þegar blaðið kemur út næsta föstudag. Ein mynd hefur þó verið birt á heimasíðu V Magazine en á henni má sjá stelpuna berrassaða í baði með ekkert fyrir sínu allra heilagasta annað en smá sápufroðu.

Þó hefur það lekið út að á mörgum myndanna sem birtar verði í blaðinu sjáist í 'allt'.

Miley er ein af þeim Hollywood stjörnum sem taka þátt í #freethenipple herferðinni en með henni vilja konur gagnrýna bandarísk lög sem banna konum að bera brjóst sín á almannafæri, jafnvel þegar verið er að gefa börnum brjóst. 

Á sama tíma þykir þeim skjóta skökku við að ofbeldismyndir eru sjaldnast ritskoðaðar í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum. 

Meðal þeirra sem hafa merkt myndir sínar með #freethenipple á Instagram og Twitter eru Miley, Chelsea Handler og Jemima Kirke úr Girls þáttunum.

Hér má sjá glitta í einhver framlög Miley í Free The Nipple herferðina: Sýnishorn af myndunum sem birtast í V Magazine næsta föstudag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×