Lífið

Sagt að Ronaldo og kærastan Irina Shayk séu hætt saman

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér er parið, föngulegt og brosmilt.
Hér er parið, föngulegt og brosmilt. Vísir/Getty
Sá orðrómur er nú í gangi að knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo og rússneska leikkonan Irina Shayk séu hætt saman. Hún mætti ekki á verðlaunaafhendinguna fyrir knattspyrnumann ársins hjá FIFA, sem á frummálinu er kallað Ballon D'or verðlaunahátíðin.

Hér er Irina Shayk í myndatöku.
Einnig hafa erlendir miðlar sagt frá því að Shayk hafi hætt að elta Ronaldo á Twitter. Fyrir jól spurðist það út að leikkonunni og móður Ronaldo kæmi illa saman.

Hvorugt þeirra hefur staðfest þennan orðróm, en svo virðist sem það gangi ekkert sérstaklega vel hjá þessu pari sem hefur vakið athygli víða um heim.

Ronaldo var valinn knattspyrnumaður ársins, en myndband frá verðlaunaafhendingunni hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Þar sést sonur Ronaldo spjalla við Lionel Messi, sem er einn helsti keppinautur Ronaldo á knattspyrnuvellinum. Margir telja að þessir tveir merku knattspyrnumenn séu ekki mikli vinir utan vallar. Hvorugur valdinn hinn í vali á þremur bestu knattspyrnumönnum heims, sem þykir sýna hve hörð samkeppnin er.



B day #4

Una foto publicada por irinashayk (@irinashayk) el






Fleiri fréttir

Sjá meira


×