Chelsea úr leik í vítaspyrnukeppni | Everton og Hull áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. október 2015 22:36 Mourinho á leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Chelsea, ríkjandi deildabikarmeistari, féll í kvöld úr leik í keppninni eftir að hafa fyrir Stoke á útivelli í vítaspyrnukeppni. Everton og Hull komust einnig áfram eftir sigra í vítaspyrnukeppni en fyrr í kvöld náði Sheffield Wednesday að slá Arsenal óvænt úr leik með óvæntum 3-0 sigri. Jonathan Walters kom Stoke gegn Chelsea snemma í síðari hálfleik með laglegu skoti utan teigs en Loic Remy, sem kom inn á sem varamaður fyrir Diego Costa, jafnaði metin í lok leiksins. Costa fór meiddur af velli í fyrri hálfleik. Phil Bardsley var rekinn af velli rétt eftir jöfnunarmark Remy en Chelsea náði ekki að færa sér liðsmuninn í nyt í framlengingunni. Vítaspyrnukeppnin var dramatísk en það var skorað úr fyrstu níu vítaspyrnunum þar til að Jack Butland varði spyrnu Eden Hazard og tryggði Stoke sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Staða Mourinho hjá Chelsea versnar því enn en liðið hefur tapað fimm af fyrstu tíu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og er nú úr leik í deildabikarnum. Norwich var nálægt því að slá Everton úr leik á Goodison Park en Sebastian Bassong kom gestunum yfir á 51. mínútu. Leon Osman jafnaði þó metin sautján mínútum síðar. Í vítaspyrnukeppninni var Darron Gibson hetja Everton. Hull sló svo úrvalsdeildarlið Leicester úr leik í vítaspyrnukeppni. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma en bæði lið náðu að skora í framlengingunni. Hinir fjórir leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Fleiri fréttir „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Sjá meira