Lífið

Kelis fékk sér Fabrikkuborgara á Secret Solstice: Átti ekki til orð yfir ferkantaða borgarann

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kelis með borgaran góða.
Kelis með borgaran góða.
Bandaríska söngkonan Kelis tróð upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í gær. Eftir tónleikana „trítaði“ hún sig og fékk sér hamborga frá Hamborgarfabrikkunni.

„Við erum með ríkistýpuna í bílnum, Fabrikkuborgari eins og hann kemur af kúnni með Fabrikkusósu og bræddum osti,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar, aðspurður hvernig borgara söngkonan fékk sér.

„Hún var að fá ferkantaðan hamborgara í fyrsta skipti. Það fór um hana þegar hún sá lögunina á borgaranum og átti ekki til orð yfir hana en henni fannst bragðið frábært og var bara mjög sátt,“ segir Jói og bætir við að það sé nauðsynlegt að fá sér borgara eftir velheppnað gigg. Það er ljóst að Kelis er með það grunvallaratriði á hreinu.  


Tengdar fréttir

Hver verður leynigesturinn á Secret Solstice?

Gísli Pálmi spilar sama kvöld og verður með nýjungar á sviðinu. Hann neitar að gefa upp hvaða rappgoðsögn sé á leið til landsins. En staðfestir að þetta sé "legend".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.