Lífið

Seldi lag í þýska auglýsingu og bandarískan sjónvarpsþátt

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Axel Flóvent spilaði á átta tónleikum á Iceland Airwaves og vakti mikla lukku.
Axel Flóvent spilaði á átta tónleikum á Iceland Airwaves og vakti mikla lukku. Mynd/SiggaElla
Húsvíkingurinn Axel Flóvent vakti mikla athygli á Iceland Airwaves-hátíðinni um síðustu helgi en tónlistarblaðamenn og bransakallar kepptust um að hrósa honum og nokkrir þeirra breyttu ferðaplönum sínum til þess að sjá síðustu tónleika hans á sunnudagskvöldið.

„Við vitum um að minnsta kosti fjögur plötufyrirtæki í stærri kantinum sem voru að fylgjast með honum um helgina. Ég veit að tveir útsendarar áttu flug heim á sunnudeginum sem þeir breyttu til að sjá síðustu tónleikana á sunnudagskvöldið. Við erum í viðræðum við nokkur plötufyrirtæki en stígum varlega til jarðar og pössum okkur að gera það sem er rétt fyrir Axel,“ segir Sindri Ástmarsson, umboðsmaður Axels.

Alls kom Axel fram á átta tónleikum á hátíðinni ásamt því að taka upp vídeó-sessjón fyrir bandarísku útvarpsstöðina KEXP og tónlistartímaritið Line of Best Fit.

„Ég hef sagt það áður að íslenskir tónlistarmenn fá ekki betra tækifæri til að sýna sig en á Iceland Airwaves. Við höfum nú þegar gengið frá meira en tíu erlendum tónleikabókunum og á Axel að minnsta kosti helminginn af því. Ég á von á því að þessi tala fimmfaldist á næstu vikum. Einnig seldi Axel lag í stóra þýska auglýsingu og vinsælan sjónvarpsþátt í Bandaríkjunum. Hinir tónlistarmennirnir mínir stóðu sig einnig mjög vel og bókaði AmabAdamA sína fyrstu erlendu tónlistarhátíð. Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur fengu líka margar fyrirspurnir og nokkur plötufyrirtæki fylgjast náið með Mána Orrasyni,“ útskýrir Sindri.

Næsta stóra verkefni Axels er Eurosonic-tónlistarhátíðin í Hollandi. Þar spilar Axel á þrennum tónleikum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.