Skoðun

Þökkum góð verk

Ellen Calmon skrifar

Öryrkjabandalag Íslands kom Hvatningarverðlaunum ÖBÍ á laggirnar árið 2007. Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Þeim aðilum er þökkuð vinna sú sem þeir hafa lagt fram til að stuðla að því að íslenskt samfélag verði raunverulega samfélag fyrir alla.



Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum; flokki einstaklinga, fyrirtækja/ stofnana og í flokknum umfjöllun/kynningu.



Verðlaununum er ætlað að vera öðrum hvatning til að stuðla að samfélagi fyrir alla ásamt því að efla frumkvæði til nýrra verkefna og hugmyndavinnu í málaflokknum.



Fjöldi tilnefninga hefur aukist frá ári til árs og vitund um verðlaunin hafa eflst, en kallað er eftir tilnefningum frá almenningi. Gaman er að geta þess að í einstaklingsflokki hafa Edda Heiðrún Backman, Freyja Haraldsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Harpa Dísa Harðardóttir og Margrét M. Norðdahl hlotið verðlaunin svo fáeinir séu nefndir.



Verðlaunaafhending fer fram þann 3. desember næstkomandi á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verðlaunanna.



Þekkir þú einhvern sem ætti að tilnefna?



Ég tel mikilvægt að þakka fólki fyrir vel unnin verk og með þessu móti getum við unnið sameiginlega að því að varpa ljósi á þær jákvæðu fyrirmyndir sem stuðla að einu samfélagi fyrir alla.



Því hvetja ég þig lesandi góður til að taka þér stund og velta því fyrir þér hver hefur skarað fram úr á þessu sviðið og senda inn tilnefningu til Hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands fyrir 15. september næst komandi.



Tilnefningar má senda um rafrænt eyðublað á vef ÖBÍ, www.obi.is



Einnig má senda tilnefningu í bréfpósti ef það hentar betur.



Vörpum ljósi á jákvæðar fyrirmyndir sem stuðla að einu samfélagi fyrir alla.

Ellen Calmon, formaður ÖBÍ




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×