Erlent

Þrír handteknir vegna sprengingarinnar í Erawan hofinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Tuttugu manns létust í sprengingunni á Erawan hofið í Bangkok.
Tuttugu manns létust í sprengingunni á Erawan hofið í Bangkok. Vísir/AFP
Malasíska lögreglan hefur handtekið tvo ríkisborgara og einn Pakistana í tengslum við rannsókn á sprengjuárásinni á  Erawan  hofið í Taílandi í síðasta mánuði.

Lögreglan segir að þremenningarnir hafi verið handteknir fyrir nokkrum dögum og að þeir væru samvinnufúsir.

Tælenska lögreglan hefur áður handtekið tvo og eru að leita að þriðja manninum vegna sprengingarinnar, sem varð 20 að bana og slasaði 120.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×