Lífið

Nýjustu þættir af Broen frumsýndir á RIFF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sýning RIFF fer fram þann 27. september næstkomandi samhliða sýningu fyrsta þáttarins í bæði Svíþjóð og Danmörku.
Sýning RIFF fer fram þann 27. september næstkomandi samhliða sýningu fyrsta þáttarins í bæði Svíþjóð og Danmörku.
Tveir þættir af nýrri seríu af Broen verða frumsýndir á RIFF kvikmyndahátíðinni sem hefst 24. september næstkomandi.

Þættirnir sem notið hafa geysimikilla vinsælda á Norðurlöndunum verða frumsýndir á hátíðinni í tengslum við fókus á danska kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð sem á hátíðinni verður í ár.

Samhliða sýningum á dönsku efni á hátíðinni verður efnt til umræðna um stöðu og uppgang í danskri kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð. Sýning RIFF fer fram þann 27. september næstkomandi samhliða sýningu fyrsta þáttarins í bæði Svíþjóð og Danmörku.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.