Viðskipti innlent

Áframhaldandi vöxtur í millilandaflugi árið 2016

Sæunn Gísladóttir skrifar
Icelandair mun fljúga til 42 áfangastaða á næsta ári.
Icelandair mun fljúga til 42 áfangastaða á næsta ári. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2016 verður um 18% umfangsmeiri en á þessu ári. Gert er ráð fyrir að farþegar verði um 3,5 milljónir á árinu 2016, og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Flogið verður til 42 áfangastaða á næsta ári. Flug verður hafið til þriggja nýrra áfangastaða, Chicago, Montreal og Aberdeen, og ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu. Næsta sumar verða alls 26 flugvélar nýttar til farþegaflugsins, tveimur fleiri en á þessu ári, segir í tilkynningu. Talið er að þessi vöxtur muni hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Framboðnum sætiskílómetrum fjölgar um 18% á næsta ári, en flugferðum í millilandaflugi fjölgar um 14%. Munurinn skýrist annars vegar af auknu vægi flugs á lengri flugleiðum til Norður-Ameríku og hins vegar af því að stækkun flugflotans á næsta ári felst í því að tvær 262 sæta Boeing 767-300 breiðþotur bætast í flota félagsins. Nýju vélarnar taka fleiri farþega en Boeing 757 vélarnar sem félagið notar annars.

Leiðakerfi félagsins hefur nærri þrefaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir, eða 37% þess fjölda sem gert er ráð fyrir á árinu 2016, eða 3,5 milljónum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×