Tónlist

Ummæli Sveinbjargar Birnu orðin að heilalími

Birgir Olgeirsson. skrifar
Sveinbjörg Birna í Kastljósinu.
Sveinbjörg Birna í Kastljósinu.
Hér er mögulega kominn slagari ársins og hann er ekki úr smiðju StopWaitGo eða Gunna Þórðar, nei, hann kemur fram tónlistarmanninum Þorsteini Baldvinssyni, betur þekktur sem Stony. Fréttavefurinn Nútiminn er framleiðandi lagsins en forsvarsmenn hans báðu Stony að vinna lag upp úr Kastljósviðtali Sigmars Guðmundssonar við Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórn.

Þar spurði Sigmar út í þá ákvörðun flokksins að skipa Gústaf Adolf Níelsson sem varafulltrúa í mannréttindaráð Reykjavíkurborgar sem var harðlega gagnrýnd á sínum tíma og fór svo að skipunin var dregin til baka. Sveinbjörg Birna sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir afstöðu Gústafs til múslima og samkynhneigðra áður en hann var skipaður varafulltrúi í mannréttindaráð og sagði að hún hefði mátt „gúggla“ hann betur, en gerði það ekki.

Útkoman er stórglæsilegt heilalím sem einhverjir eiga eflaust eftir að söngla nú um páskana. 


Tengdar fréttir

Stony: „Netið er klikkað“

Á ráðstefnunni Sko, sem haldin var í Hörpu á fimmtudag, var sýnt nýtt heimildarmyndband þar sem Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, rekur hvernig netið skaut honum upp á stjörnuhimin á örskömmum tíma og kom honum í samband við alþjóðleg fyrirtæki og stórstjörnur.

Stony sendir frá sér eigin tónlist

Tónlistarmaðurinn Stony sendir frá sér frumsamið efni í fyrsta sinn um þessar mundir. Hann syngur, rappar og leikur á öll hljóðfærin og á nógu að snúast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.