Aldrei fór ég suður með órafmagnaða tónleika í Ísafjarðarkirkju Birgir Olgeirsson skrifar 5. mars 2015 15:44 Júníus Meyvant er á meðal þeirra sem koma fram á órafmögnuðum tónleikum í Ísafjarðarkirkju föstudaginn langa en tónleikarnir verða hluti af ísfirsku tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Vísir/Pjetur/IngólfurBjargmundarson/Íton
Breytingar hafa verið gerðar á ísfirsku tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Undanfarin ár hefur hátíðin boðið upp á tónlistaratriði föstudaginn langa og laugardag fyrir páska í skemmunni á Grænagarði í Skutulsfirði en í ár verður sú breyting að haldnir verða órafmagnaðir tónleikar í Ísafjarðarkirkju á föstudeginum langa ásamt öðrum viðburðum sem verða kynntir síðar. Þeir tónlistarmenn sem munu koma fram í Ísafjarðarkirkju eru Valdimar Guðmundsson, Himbrimi, Guðrið Hansdóttir og Júníus Meyvant. Í tilkynningu frá Birnu Jónasdóttur, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, kemur fram að ýmsir viðburðir verða víðsvegar á Ísafirði að kvöldi föstudagsins langa og verða þeir kynntir til sögunnar á næstu dögum. Því má eflaust vænta spennandi breytinga á þessari tónlistarhátíð sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og virðist hún vera að breiða arma sína yfir allan bæinn á föstudeginum langa en vænta má að tónleikar verði í skemmunni á Grænagarði á laugardeginum.Hér fyrir neðan má sjá þá tónlistarmenn sem koma fram í Ísafjarðarkirkju:Hljómsveitin Valdimar (Valdimar Guðmundsson verður þó einn í Ísafjarðarkirkju)HimbrimiGuðrið HansdóttirJúníus Meyvant
Aldrei fór ég suður Tónlist Mest lesið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Anora óvæntur sigurvegari á Óskarnum Bíó og sjónvarp Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Stjörnulífið: Kærleiksríkir menn á Bessastöðum Lífið Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Enginn nakinn á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira