Leikjavísir

Hita upp fyrir útgáfu Fallout 4

Samúel Karl Ólason skrifar
Bethesda birti í dag nýja stiklu fyrir nýjasta leik Fallout seríunnar, sem kemur út þann 10. nóvember næstkomandi. Fallout 4 er beðið með mikilli eftirvæntingu en serían hefur notið gífurlegra vinsælda um árabil.

Auk þess að birta nýja stiklu, gaf Bethesda út appið Pip-Boy. Appið má nota til að tengjast leiknum, hvort sem það er á PC, PS4 eða XboxOne. Ekki er hægt að nota það enn, þar sem leikurinn er ekki kominn út, en meðal annars er hægt að skoða kort leiksins þar.

Einnig verður hægt að hlusta á útvarp leiksins og spila leiki.

Appið má finna á bæði Google Play og iTunes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×