„Íslenskur vinur okkar bjó í Salzburg í sjö ár. Við ákváðum að sameina heimsókn til hans og Iceland Airwaves,“ sögðu félagarnir á meðan þeir nærðu sig í anddyri Hörpu í gærkvöldi. Þeir komu til landsins á mánudag og hafa síðan notið tónlistar og sötrað bjór.
„Við keyptum nokkra kassa af bjór í Vínbúðinni. Áfengi er eitt af því mikilvægasta í lífi Austurríkismanna og á meðan á tónlistarhátíðum stendur er mikilvægt að vera fullur. Við vissum hins vegar ekki hve fáránlega dýr hann væri hér á landi,“ segja strákarnir.
Agent Fresco spiluðu í Silfurbergi í gærkvöldi.
Mánudeginum vörðu þeir á Kex þar sem þeir hlustuðu á tónlist og keyptu bjór af barnum.
„Það var dýr dagur,“ segja strákarnir sem tóku kojufyllerí heima hjá vini sínum á þriðjudeginum. Stofuborðið var þakið bjór og síðan sötrað. Þeir neituðu því ekki að þeir væru aðeins eftir sig í gær eftir átök þriðjudagsins en væru að skríða saman. Þeir sögðust ekki hlakka til að skoða kreditkortareikninginn þegar þeir kæmu aftur heim.
„Það er kviknað í kortinu,“ segir Peter en Thomas sér „jákvæðu hliðina“. „Það góða við kreditkort er að þau eru vandamál síðar meir,“ segir hann og hlær.
Strákarnir voru að gíra sig upp fyrir tónleika með Manu Delago frá Austurríki í gærkvöldi. Annars sögðust þeir spenntastir fyrir tónleikum John Grant með Sinfó. Ætluðu þeir að passa sig að sofa ekki yfir sig en miðar voru afhentir í hádeginu í dag undir formerkjunum, fyrstur kemur - fyrstur fær.
„Þess vegna erum við að borða svo við verðum ekki of fullir á eftir,“ segir Thomas.
Röðin var löng eftir miðum á John Grant í hádeginu.
Svo mætti ætla að fegurð íslenskra kvenna væri óumdeild. Sigrar í fegurðarsamkeppni mætti nota sem rök á meðan aðrir myndu segja að nóg væri að líta í kringum sig. Félagarnir segjast þó ekkert sérstaklega spenntir fyrir íslenskum stelpum.
„Íslenski vinur okkar sagði í gær að íslensku stelpurnar væru orðnar alltof feitar. Ástæðan er víst sú að þær eru sólgnar í skyndibitann,“ segir Peter. Blaðamaður er ekki lítið hissa á þessum viðbrögðum og horfir spurnaraugum á Peter þar sem hann japlar á frönskum kartöflum.
„Ég er ekki stelpa!“
Aðspurðir segjast þeir félagar að sjálfsögðu vera búnir að logga sig inn á Tinder.
„Auðvitað! Ég er líklega búinn að fá 20 match á síðustu 20 tímum. Eitt á klukkutíma,“ segir Peter. Thomas er ekki alveg jafnkokhraustur en hann sagðist vera búinn með kvótann á stelpum sem hann geti líkað við innan tiltekins tíma.