Viðskipti innlent

Yfirvöld grípi til aðgerða vegna mikils samkeppnisforskots Icelandair

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sú staðreynd að Icelandair hefur fengið forgang nánast öllum afgreiðslutímum á álagstímum úthlutað gefur flugfélaginu mikið samkeppnisforskot, að mati Samkeppniseftirlitsins.
Sú staðreynd að Icelandair hefur fengið forgang nánast öllum afgreiðslutímum á álagstímum úthlutað gefur flugfélaginu mikið samkeppnisforskot, að mati Samkeppniseftirlitsins. vísir/vilhelm
Sú staðreynd að Icelandair hafi forgang að tilteknum afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli hindrar samkeppni á flugmarkaði hér á landi að mati Samkeppniseftirlitsins.

Vegna þessa hefur stofnunin beint því til innanríkisráðherra og Samgöngustofu að gripið verði til aðgerða þar sem hagsmunir almennings af virkri samkeppni í áætlunarflugi verði settir á oddinn.

Afgreiðslutímarnir sem um ræðir eru annars vegar á milli 7 og 8 á morgnana og hins vegar á milli 16 og 17:30 síðdegis. Um álagstíma á flugvellinum er að ræða en afgreiðslutími er sá tími sem flugfélögin fá úthlutað til að lenda, nýta sér þjónustu og flugafgreiðslu á flugvellinum og taka svo á loft.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er afrakstur rannsóknar sem ráðist var í eftir kvörtun sem flugfélagið WOW air beindi til eftirlitsins á síðasta ári vegna meints samkeppnisforskots Icelandair vegna umræddra afgreiðslutíma.

Leiddi rannsóknin í ljós að afgreiðslutímarnir væru „sérstaklega mikilvægir flugfélögum sem vilja koma á samkeppni í tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku, með Keflavíkurflugvöll sem tengistöð. Rannsóknin leiðir ennfremur í ljós að Icelandair hefur ekki aðeins forgang að afgreiðslutímum sem félaginu hefur verið úthlutað áður, heldur einnig nýjum afgreiðslutímum sem stafa af aukinni afkastagetu.“

Sú staðreynd að Icelandair hefur fengið forgang nánast öllum afgreiðslutímum á álagstímum úthlutað gefur flugfélaginu mikið samkeppnisforskot, að mati Samkeppniseftirlitsins.

Fram kemur jafnframt að Isavia hafi ítrekað mótmælt því mati eftirlitsins að umræddir afgreiðslutímar séu mikilvægir með tilliti til samkeppnissjónarmiða.

„Þá bera samskipti við Samgöngustofu með sér að stofnunin hefur takmarkaðan skilning á þeim samkeppnishindrunum sem tengjast úthlutun á afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli og Samkeppniseftirlitið hefur bent á um árabil. Hefur stofnunin virt að vettugi tilmæli Samkeppniseftirlitsins um að framkvæma samkeppnismat við endurskoðun á fyrirkomulagi við úthlutun á afgreiðslutímum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×