Um fjörutíu drengjum rænt af liðsmönnum Boko Haram Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2015 16:36 Baráttan gegn liðsmönnum Boko Haram hefur staðið yfir frá 2009. Vísir/AFP
Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Boko Haram eru grunaðir um að hafa rænt um fjörutíu drengjum og ungum karlmönnum í áhlaupi á afskekkt þorp í norðausturhluta Nígeríu. Aðrir íbúar bæjarins Malari í Borno-héraði komu til héraðshöfuðborgarinnar Maiduguri á föstudaginn og sögðu drengina hafa verið numda á brott á gamlársdag. Boko Haram hefur staðið fyrir árásum í landinu frá árinu 2009 og stefna að því að koma á íslömsku ríki á svæðinu. Íbúar Malari segja að árásarmennina hafa komið inn í þorpið á bílum sínum og fyrirskipað öllum karlmönnum að safnast saman og hlýða á prédikun. Mönnunum hafi þá verið rænt og farið með þá inn í nálægan skóg. Í síðasta mánuði gerðu Boko Haram-liðar áhlaup á annað þorp, Gumsuri, og segir einn íbúa að 33 þorpsbúar hafi verið myrtir og um tvö hundruð manns rænt. Rúmlega tvö þúsund manns létust í árásum liðsmanna Boko Haram í norðausturhluta Nígeríu á síðasta ári. Liðsmenn Boko Haram rændu um tvö hundruð stúlkum frá heimavistarskóla í Borno í apríl á síðasta ári. Ránið vakti mikla athygli, en þrátt fyrir hernaðarlega aðstoð frá Kína, Frakklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum hefur enn ekki tekist að bjarga stúlkunum.
Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Innlent Strætó rann á bíl og ruslaskýli Innlent Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Erlent Fleiri fréttir Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Sjá meira