Tónlist

Sólóplata á leiðinni

Freyr Bjarnason skrifar
Sóley Stefánsdóttir sendir frá sér nýja plötu á árinu.
Sóley Stefánsdóttir sendir frá sér nýja plötu á árinu. Vísir/Anton
Tónlistarkonan Sóley hefur lokið upptökum á annarri sólóplötu sinni og fer lokafrágangur hennar fram núna í byrjun janúar.

Útgáfa er fyrirhuguð síðar á árinu á vegum þýska fyrirtækisins Morr Music. Árið 2014 var viðburðaríkt hjá Sóleyju því auk þess að ljúka upptökum á plötunni eignaðist hún sitt fyrsta barn.

Fram undan hjá tónlistarkonunni er tónleikaferð síðar á árinu til að fylgja nýju plötunni eftir. Fyrsta plata hennar, We Sink, kom út 2011 við mjög góðar undirtektir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.