Boðar auknar öryggisráðstafanir í Svíþjóð sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 19. nóvember 2015 19:30 Stefan Löfven vill meðal annars að auka eftirlit með rafrænum samskiptum. vísir/epa
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagðist á blaðamannafundi síðdegis ætla að herða öryggisráðstafanir í landinu vegna árásanna í París. Hann sagði stjórnvöld líklega hafa verið barnaleg til þessa gagnvart mögulegum hryðjuverkaárásum þar í landi. Löfven sagði að líklega ættu Svíar erfitt með að sætta sig við að í hinu opna sænska samfélagi væri að finna fólk sem tæki afstöðu með hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við Íslamskt ríki. Hann lagði til að aukið eftirlit yrði haft með rafrænum samskiptum, meðal annars farsímum og Skype. Þá sagði hann að draga þyrfti þá sem tækju þátt í hryðjuverkastarfsemi að einhverju tagi til ábyrgðar. Fyrirhugað væri að setja lög um að óheimilt verði að taka þátt í hryðjuverkaþjálfun, eða –starfsemi, eða fjármagna slíkar ferðir. Sænska öryggislögreglan hækkaði í gær viðbúnaðarstig vegna hættu á hryðjuverkum úr þremur í fjóra, sem er næst hæsta stig viðbúnaðar, en það hefur aldrei verið svo hátt í landinu. Að sögn sænskra fjölmiðla var viðbúnaðarstig hækkað eftir að upplýsingar bárust um að í landinu væri maður sem hefði það í huga að fremja hryðjuverk. Hann er 25 ára frá Írak, og er hans nú leitað.
Hryðjuverk í París Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Innlent Fleiri fréttir Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Sjá meira