Lífið

Kendall Jenner og Nick Jonas slá sér upp

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Kendall og Nick eru líklega hið glæsilegasta par.
Kendall og Nick eru líklega hið glæsilegasta par. mynd/getty
Það gengur hávær orðrómur um Hollywood um að söngvarinn Nick Jonas og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner séu að stinga saman nefjum.



Kendall hefur áður verið kennd við hjartaknúsarann Harry Styles en þau hættu saman fyrir meira en ári. Nick er nýlega hættur með kærustu sinni til tveggja ára.



Ferill þeirra beggja hefur verið að blómstra upp á síðkastið. Kendall er að gera það gott í tískuheiminum og birtist í auglýsingum fyrir stærstu tískuhúsin á borð við Fendi, Chanel og Estée Lauder ásamt því að gefa út sína eigin fatalínu með Kylie Jenner, systur sinni.

Snúinn aftur Nick Jonas er stiginn inn í sviðsljósið á ný eftir langa pásu.
Nick Jonas var í hljómsveitinni Jonas Brothers með bræðrum sínum en þeir hættu störfum fyrir nokkrum árum. Hann hefur haldið sig utan sviðsljóssins í langan tíma en á seinasta ári gaf hann út lagið Jealous sem sló í gegn og hann hefur verið að koma sér vel fyrir meðal vinsælustu söngvara líðandi stundar.



Besta vinkona Kendall, Gigi Hadid, er á föstu með Joe Jonas, sem er bróðir Nicks. Það er ekki ólíklegt að Gigi og Joe hafi haft eitthvað að gera með þetta nýjasta samband í Hollywood en það er verður spennandi að sjá hvort eitthvað verði úr því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×