Bíó og sjónvarp

Chris Rock og Danny Devito vildu ekki leika George

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chris Rock, Jason Alexander og Danny Devito.
Chris Rock, Jason Alexander og Danny Devito. vísir/getty
Leikarinn Jason Alexander fór með hlutverk George Costanza í vinsælu þáttunum Seinfeld í mörg ár en það munaði litlu að hann hefði ekki fengið hlutverkið.

„Það sóttust margir eftir því að fá þetta hlutverk og má nefna þá Larry Miller, Brad Hall (sem er í dag giftur Julia Louis-Dreyfus), David Alan Grier, Nathan Lane, Steve Buscemi, Paul Shaffer, Danny Devito, og Chris Rock,“ segir Alexander í útvarpsþætti Howard Stern en þeir fóru allir áheyrnarprufu fyrir hlutverkið.

„Chris Rock og Danny Devito var boðið hlutverkið en þeir neituðu því.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×