Lífið

Útlit fyrir að sólin skíni á litahlaupara

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Color Run hófst í Phoenix Arizona árið 2012.
Color Run hófst í Phoenix Arizona árið 2012. Vísir/Getty
Veðrið fyrir Color Run eða Litahlaupið lofar góðu en samkvæmt Veðurstofu Íslands stefnir í að heiðskírt verði og sólin leiki við litríka hlaupagarpa.

Það verður austlæg eða breytileg átt 3 – 7 metrar á sekúndu og litlar líkur á rigningu. Þeim litum sem fleygt er yfir keppendur skolast því ekki í burtu heldur haldast út hlaupið.

Sjá einnig: The Color Run í fyrsta skipti á Íslandi

Eins og sjá má verður sólin hátt á lofti.Vísir/Vedur.is
Color Run er hlaup sem ekki gengur út á keppni eða tímatökur heldur kynnt sem skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þetta er í fyrsta sinn sem hlaupið er haldið hér á landi en það virkar þannig að litapúðri er kastað yfir hlaupara í lok hvers kílómetra. Bæði eftir og fyrir hlaupið verður dansað í Hljómskálagarðinum.

Hlaupið hefst formlega klukkan 11 en fyrirpartýið svokallaða hefst klukkan 9.

Hlýjast verður á suðvestanverðu landinu á laugardeginum en þó er farið að birta á Norðurlandi og hætt að snjóa. Þar verður einnig heiðskírt og lítill vindur.

Sjómannadagurinn lofar ekki eins góðu fyrir höfuðborgarbúa en spá Veðurstofunnar segir að skýjað verði og að mögulega gæti rignt. Þá mun sólin leika við íbúa austar á landinu. Á mánudeginum tekur að rigna um mest allt land.


Tengdar fréttir

Dúndruðu litasprengjum í fræga

"Fögnum góðum árangri og hvetjum fólk til að gefa sér fimmu fyrir það í hlaupinu á laugardaginn,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.