Menning

Hlustið á Egil lýsa frumbernsku sinni

Jakob Bjarnar skrifar
Egill í hljóðverinu hvar hann kann vel við sig.
Egill í hljóðverinu hvar hann kann vel við sig.

Egill Ólafsson tónlistarmaður með meiru er sagnamaður af Guðs náð. Hann hefur, í samstarfi við rithöfundinn og bókmenntafræðinginn Pál Valsson, sent frá sér bók sem byggir á ævi Egils: Egilssögur – á meðan ég man.

Því fylgir bókaútgáfu dagsins í dag að höfundar lesi upp úr bókum sínum um víðan völl og samhliða er svo hljóðbókaútgáfa. Sennilega fá útgefendur seint slíkan mann í höfundagallerí sitt og Egil til að vaða í þau verk. Auðvitað er kunnara en frá þurfi að segja að rödd Egils hefur ekki aðeins hljómað í hlustum landsmanna í gegnum söng, hann er einhver eftirsóttasti lesari landsins enda fáir sem komast með tærnar þar sem Egill hefur hælana við að ljá orðum vængi með röddu sinni. Kannski Bó?

Hér er hljóðdæmi: Egill les úr bók sinni og er lesendum Vísis ráðlagt að lygna aftur augum, hækka vel í hátalaranum eða head-settinu og heyra Egil lýsa frumbernsku sinni.

Egils sögur, hljóðbók

Hljóðbók; tveggja radda, með tónum og tóndæmum. Töfrandi seiður.

Posted by eBækur on 25. nóvember 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.