Tónlist

Frumsýnt á Vísi: Samkvæmisdansar Óla Geirs í nýju myndbandi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Samkvæmisdansararnir eru fyrirferðamiklir
Samkvæmisdansararnir eru fyrirferðamiklir mynd/óli geir
„Það er ógeðslega heitt þarna, stundum alveg fjörutíu gráður,“ segir Ólafur Geir Jónsson, yfirleitt kallaður Óli Geir, en hann er nýkominn heim frá Filipseyjum. Hann sendir í dag frá sér glænýtt lag.

Lagið heitir Crank it up en Anna Hlín Sekulic syngur lagið. Þess má til gamans geta að akkúrat á þessum degi, fyrir sex árum síðan, endaði Anna Hlín í öðru sæti í fjórðu þáttaröð af Idol stjörnuleit.

„Mér fannst röddin hennar henta laginu vel og ég hafði samband við hana. Hún var til í þetta og við dembdum okkur í hljóðver og kláruðum dæmið. Hún er ég með mjög töff rödd og ég man að ég hélt með henni í Idol,“ segir Óli Geir.

Keypt af þýsku útgáfufyrirtæki

Óli Geir vann að síðasta lagi sínu með Friðriki Dór en það var sungið á íslensku. „Það var erfiðara að koma því út en það hefur gengið betur með þetta. Þýskt útgáfufyrirtæki sem heitir Bang It! er búið að kaupa það og ætlar að dreifa því. Ég er nýbúinn að spila úti og er á leiðinni út til að spila meira.“

Á döfinni eru fleiri lög en engin plata. „Ég er ekki að spá í neinni plötu. Ég á tilbúin einhver fjögur lög og óþolinmæðin er alveg að fara með mig. Mann langar helst að koma þeim öllum út strax. En ætli það verði ekki um sex vikur í næsta lag,“ segir Óli Geir.

Handritið að myndbandinu er eftir Birgi Ólaf Pétursson og Jóhann Birgi Jónasson en Birgir leikstýrir jafnframt myndbandinu. Viktor Aleksander Bogdanski var bak við linsuna og Aníta Hlín Guðnadóttir, Jón Eyþór Gottskálksson og Sveinbjörn Fjölnir Pétursson léku.

Ekki hægt að gera öllum til geðs

Myndbandið er eilítið öðruvísi en fyrri myndbönd Óla Geirs en þau hafa mörg hver innihaldið sæmilega stór partí og hann að spila. „Yfirleitt eru myndbönd við þessa tónlistarstefnu mjög svipuð. Það er einhver smá söguþráður og inn á milli má sjá brjálað partí þar sem DJ-inn er að spila. Það var annaðhvort að gera það eða fara í allt, allt aðra átt.“

Niðurstaðan var sú að fá tvo samkvæmisdansara til að taka sveiflu á meðan lagið spilast undir. Síðasta myndband Óla vakti umtal þar sem einhverjir vildu meina að hann væri að hvetja til áfengisneyslu unglinga en Óli segir að það tal hafi ekki haft nein áhrif á þetta myndband.

„Það er alltaf einhver sem er óhress en ég leiddi það bara hjá mér. Þetta var svo mikil vitleysa. Tónlistarmyndbönd eru í raun stuttmyndir og hafa sinn eigin söguþráð. Ég meina ef þú sérð ungan alka í bíómynd, myndi þér detta í hug að myndin væri að hvetja til neyslu? Þetta gengur bara ekki upp,“ segir Óli Geir að lokum.

Myndbandið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×