Nördavæðing NBA Kjartan Atli Kjartansson skrifar 2. maí 2015 12:15 Hér má sjá hinn unga framkvæmdastjóra Denver Nuggets Tim Connelly ásamt eigendum félagsins Arturas Karnisovas , Stanley Kroenke og Josh Kroenke.
Þegar gengið er um skrifstofur sögufræga félagsins Boston Celtcs sést skilti hanga á einni hurðinni merkt BIA. Skammstöfunin vísar til CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, og þýðir skammstöfunin Basketball Intelligence Agency. Vissulega er skiltið sett upp með húmor í huga en þetta fangar samt sem áður hugarfarið í NBA-deild 21. aldarinnar. Fókusinn í NBA hefur að vissu leyti færst frá leikmönnunum inni á vellinum og yfir á hvaða upplýsingar skrifstofur félaganna í NBA-deildinni geta útvegað. Markmið ráðamanna liðanna er að gera leikinn mælanlegan; að finna réttar breytur svo hægt sé að kortleggja leikfræðina og hegðun leikmanna á vísindalegan hátt.Daryl Morey, framkvæmdastjóri Houston Rockets, hefur gengið langt í að tölfræðivæða félag sitt.Vísir/GettyLeikfræðinni breytt Þessi bylting, ef svo má kalla, hófst fyrir um áratug og hefur haft mikil áhrif á spilamennsku margra liða í deildinni. Lið Houston Rockets hefur gengið lengst í þessari tölfræðivæðingu og liðið leitar nú aðeins að skotum mjög nálægt körfunni eða fyrir aftan þriggjastigalínuna. Auk þess hefur framkvæmdastjóri liðsins, Daryl Morey, öfluga sérfræðinga á sínum snærum sem greina leiki og leikmenn hinna liðanna ítarlega og eru leikmenn stundum fengnir til liðsins vegna þess að þeir uppfylla mjög afmörkuð skilyrði, skilgreind út frá tölfræðinni.Shane Battier er talinn vera sá leikmaður í NBA sem nær að nýta sér tölfræðina sem best. Þegar hann var leikmaður Houston Rockets fékk hann bæklinga um þá leikmenn sem hann átti að dekka með ítarlegri tölfræði. Hann þótti einstaklega snjall varnarmaður þegar hann var upp á sitt besta.Vísir/GettyUngir framkvæmdastjórar Fleiri lið hafa fetað svipaðar leiðir og Rockets og hefur þessi vísindalegi þankagangur verið í stöðugri útbreiðslu. Oft eru fulltrúar þessarar byltingar af yngri kynslóðinni og má sjá hversu vel þessi vísindalega nálgun á leikinn er vinsæl með því að skoða aldur framkvæmdastjóra deildarinnar. Undanfarinn áratug hafa nokkrir verið ráðnir inn í þessar ábyrgðastöður, rétt um þrítugt. Má þar nefna Sam Presti, framkvæmdastjóra Oklahoma City Thunder, sem náð hefur markverðum árangri. Hann var ráðinn 31 árs og var þá yngsti framkvæmdastjórinn í sögu NBA. Rob Hennigan, framkvæmdastjóri Orlando Magic, var ráðinn þrítugur og sló met Presti. Báðir nálgast starfið á nýstárlegan hátt, með tölfræðina að vopni.Kevin Durant er leikmaður Oklahoma City Thunder. Félagið nýtir sér tölfræði til þess að ná meiri árangri. Sam Presti, framkvæmdastjóri félagisns er í framvarðasveit nýrra kynslóðar framkvæmdastjóra.Vísir/GettyBetri aðgangur að upplýsingum Það eru ekki bara stjórnendur NBA-liðanna sem nýta tölfræðigögnin. Mikil þróun hefur verið í því hvernig blaðamenn fjalla um deildina. Ný kynslóð blaðamanna sem nýtir sér bættan aðgang að upplýsingum hefur rutt sér til rúms. Vefsíðan Grantland hefur til að mynda sérhæft sig í slíkri umfjöllun. Einn af föstum pennum síðunnar er til að mynda Kirk Goldsberry, landfræðingur og kortagerðamaður sem kennir við Harvard. Goldsberry skrifaði doktorsritgerð um hvernig væri hægt að kortleggja umferð og hefur nýtt sérþekkingu sína í að setja fram gögn um hvar leikmenn skora með sem auðveldustum hætti og hefur með sérþekkingu á framsetningu gagna vakið mikla athygli.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira