Tónlist

Selena Gomez, Jessica Alba og Cindy Crawford í nýju myndbandi Taylor Swift

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Úr myndbandinu
Úr myndbandinu
Undanfarnar vikur hefur Taylor Swift byggt upp spennu fyrir tónlistarmyndband sitt við lagið Bad Blood. Nú er það loksins komið út og skartar fólki á borð við Selenu Gomez, Jessicu Alba, Hailee Steinfeld, Kendrick Lamar, Hayley Williams og Cindy Crawford svo aðeins fáir séu nefndir til sögunnar.

Joseph Kahn sá um leikstjórn myndbandsins en hann leikstýrði einnig myndbandinu við lagið Blank Space og Love the way you lie með Eminem og Rihönnu. Að auki hefur hann leikstýrt nokkrum B-klassa hryllingsmyndum.

Myndbandið er eins og Fifth Element, Tron og Sin City hafi eignast barn saman. Sjón er sögu ríkari.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.