Innlent

Boðað til samningafundar í dag

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Starfssemi Landspítalans dróst saman um hátt í helming í gær vegna verkfalls yfir 500 félagsmanna í BHM á sjúkrastofnunum í landinu, en Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar í dag. Sömuleiðis varð veruleg röskun á starfssemi embættis sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna verkfalls lögmanna þar.

27 aðildarfélög BHM liða eiga nú digran verkfallssjóð, að því er fram kom á samstöðufundi þeirra í gær, en upphæðin var ekki tilgreind.-Þá samþykktu tæknimenn hjá Ríkisútvarpinu með yfirgnæfandi meirihluta að boða til verkfalls , sem hæfist 20. apríl, ef ekki hefur samist fyrir þann tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×