Innlent

Hörkuverkföll virðast það eina í spilunum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Í verkfallsmiðstöð BHM í Rúgbrauðsgerðinni við Borgartún í Reykjavík kom í gær saman fólk úr aðildarfélögunum fimm sem þá voru að hefja fyrstu verkfallsaðgerðir.
Í verkfallsmiðstöð BHM í Rúgbrauðsgerðinni við Borgartún í Reykjavík kom í gær saman fólk úr aðildarfélögunum fimm sem þá voru að hefja fyrstu verkfallsaðgerðir. Fréttablaðið/Valli
Samninganefnd ríkisins kynnir tillögur sínar í kjaraviðræðunum við Bandalag háskólamanna (BHM) á fundi hjá ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag. Verkföll eru hafin hjá hluta aðildarfélaga BHM og fleiri á leið í verkfall. Ekki hefur verið fundað í deilunni síðan fyrir páska.

Á mánudag, annan í páskum, hafnaði líka Félagsdómur kröfu ríkisins um að boðuð verkföll fimm stéttarfélaga innan vébanda BHM hefðu verið ólöglega boðuð.

Páll Halldórssonfréttablaðið/stefán
Páll Halldórsson, formaður BHM, fagnaði úrskurðinum og kvaðst telja að kraftar ríkisins hefðu nýst betur við samningaborðið. Hann segir mest lítið að frétta af viðræðum fyrr en fundað verður með samninganefnd ríkisins í dag. 

Viðbrögð ríkisins til þessa segir Páll ekki benda til þess að ríkinu liggi á í viðræðunum. „En ég er nú að vonast til þess að þeir fari að átta sig á alvöru málsins þannig að það herði eitthvað á.“ Töf á viðræðum til þessa hafi verið rökstudd með því að samninganefndin þyrfti að undirbúa efni sem leggja ætti fram á fundinum í dag. 

„Og við skulum þá vonast til þess að eitthvað bitastætt komi frá þeim. Ég ætla ekki að fullyrða um hvað það gæti verið, en ég get alveg leyft mér að vera bjartsýnn,“ segir Páll.

Magnús Pétursson
.Ellefu fundir haldnir áður

Varðandi meintan seinagang á viðræðum þá svarar Guðmundur H. Guðmundsson, varaformaður samninganefndar ríkisins, fyrirspurn blaðsins um málið á þá leið að deila aðildarfélaga BHM sem standi að verkfallsaðgerðum sé hjá sáttasemjara. 

„Og það er hann sem ákveður fundi að eigin mati,“ segir í svarinu. Efni funda sé trúnaðarmál.

Magnús Pétursson ríkissáttasemjari segir deilunni hafa verið vísað til embættisins 26. mars. „Frá því þetta kemur hingað hef ég efnt til tveggja funda, 30. mars og 1. apríl,“ segir hann. 

Á báðum fundum hafi verið farið í gegnum ákveðin formsatriði og staðan skoðuð. „Og ég held að ekkert brot sé á trúnaði þó ég upplýsi að ég var fræddur um að ellefu fundir hefðu verið haldnir í deilunni áður en hún kom hingað.“ 

Á samningafundi 1. apríl hafi komið fram, líkt og Páll Halldórsson hafi greint frá, að ríkið hafi ekki getað talið sig geta lagt fram nein viðbrögð við kröfugerð BHM, fyrr en á fundinum í dag. 

„Þegar þannig stendur á og ítrekað er búið að ganga eftir afstöðu ríkisins til málsins, þá boðar sáttasemjari ekki til fundar um ekki neitt.“ 

Eins hafi líka sett strik í reikninginn að beðið hafi verið niðurstöðu Félagsdóms vegna verkfallsboðunar fimm aðildarfélaga BHM. 

Auk boðaðra aðgerða BHM undirbúa félög Starfsgreinasambandsins (SGS) nú boðun verkfallsaðgerða. Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, segir stefnt að því að atkvæðagreiðsla, sem fallið var frá vegna athugasemda Samtaka atvinnulífsins (SA), fari fram í næstu viku, en verið sé að ljúka kynningu á stöðunni hjá hverju félagi fyrir sig. 

Björn Snæbjörnsson
Verkföll SGS undir lok mánaðar

„Ég reikna með að gögn verði send út fyrir næstu helgi og kosningin verði búin upp úr 20. apríl,“ segir hann. „Þá kemur þetta í ljós og tekur sjö sólarhringa að boða verkfall.“ Aðgerðir geti því í fyrsta lagi hafist undir lok mánaðarins.

Björn segir að fundi í kjaradeilu SGS og SA sem átti að halda í gærmorgun hafi verið frestað til föstudags vegna veðurs. „En það er ekkert mikið að gerast, heldur er eins og menn séu að bíða eftir einhverju,“ segir Björn og kveðst lítinn vilja finna hjá SA til viðræðna. Langt virðist á milli á flestum vígstöðvum. Þannig sé skrítin staða uppi hjá BHM að sólarhringur verði liðinn í verkfalli áður en haldinn sé samningafundur. „Svona hefur maður ekki þekkt áður.“ 

Mögulega hafi viðsemjendur sætt sig við hörð átök á vinnumarkaði. „Miðað við það hvernig menn eru að spila þetta þá er ekkert annað í spilunum en hörkuverkföll. Og kannski þarf það til að hreyfa við mönnum.“

Björn telur um leið afar litlar líkur á því að viðsemjendur ríkis og SA gefist upp þótt til verkfalla komi. Fast sé staðið að baki þeim kröfum sem lagðar hafi verið fram.

Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins.Vísir/Egill Aðalsteinsson
Í fríi í útlöndum

Fram kom í fjölmiðlum í gær að formaður samninganefndar ríkisins, Gunnar Björnsson, væri í leyfi frá störfum. 

Samkvæmt heimildum Nútímans mun hann staddur í Mjanmar (Búrma) í Asíu. 

Í fjarveru Gunnars stýrir Guðmundur H. Guðmundsson, varaformaður samninganefndarinnar, starfi hennar. Leyfi Gunnars er því ekki sagt hafa áhrif á framgang viðræðnanna.

Tæknimenn RÚV boða verkfall á ný

Starfsmenn RÚV sem eru í Rafiðnaðarsambandi Íslands hafa boðað til verkfalls á ný, fyrst 16. til 19. apríl næstkomandi og svo aftur frá 24. apríl, þá ótímabundið.

Í tilkynningu RÚV segir að fyrir rúmri viku hafi legið fyrir samkomulag um lykilatriði nýs fyrirtækjasamnings, en á lokametrunum hafi samninganefnd RSÍ sett fram nýjar kröfur sem RÚV hafi ekki getað gengið að.

„Ríkisútvarpið vill að sjálfsögðu tryggja starfsmönnum RÚV sanngjörn kjör en sú viðleitni verður að vera í einhverju samhengi við þá samninga sem gerðir eru á almennum markaði og mega ekki stofna rekstri RÚV í óvissu til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Ábyrgðarleysi að boða ekki fund í deilunni fyrr

Páll Halldórsson, formaður BHM, segir það fádæma ábyrgðarleysi að boða ekki til fundar í kjaradeilu ríkisins og félagsins yfir páskana, þrátt fyrir yfirvofandi verkfall.

Ferðafólk hættir við að koma vofi verkföll yfir

Yfirvofandi verkfall SGS hefur mikil áhrif á ferðaþjónustu. Fyrri reynsla af verkföllum sýni að ferðamenn afbóki áður en til verkfalls kemur. "Verkfall er algjörlega á ábyrgð SA,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS.

Verkföll framundan hjá Starfsgreinasambandinu

Síðdegis í dag slitnaði upp úr samningaviðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins eftir klukkustundarfund í húsakynnum ríkissáttasemjara.

Fresta hefur þurft skurðaðgerðum vegna verkfalls

Fresta þurfti skurðaðgerðum á Landspítalanum í morgun vegna verkfallsaðgerða félagsmanna BHM. Starfandi forstjóri spítalans segir áhrifa verkfallsaðgerðanna gæta víða á spítalanum.

Enginn fundur um páskana

Íslenska ríkið stefndi Bandalagi háskólamanna fyrir Félagsdóm vegna verkfallsboðunar fimm aðildarfélaga

Skrítið að meirihluti skikki suma í verkfall

Félagsdómur tekur á morgun fyrir kæru ríkisins vegna verkfallsboðunar nokkurra aðildarfélaga BHM. Formaður félagsins segir um annars konar mál að ræða en vegna verkfallsboðana SGS. Verkföll háskólamanna hefjist að óbreyttu í næstu viku.

Mikill hugur í félagsmönnum BHM

Mikill hugur er í félagsmönnum BHM sem hófu verkfallsaðgerðir á miðnætti. Þetta segir Páll Halldórsson formaður Bandalags háskólamanna. Fimm hundruð og sextíu félagsmenn BHM lögðu niður störf á miðnætti.

Ríkið vinnur að útspili í kjaradeilunum

Rætt um hækkun húsaleigu- og vaxtabóta sem og skatta á leiguhúsnæði sem útspil í yfirstandandi kjaraviðræðum. Að ríkisstjórnin hafi haldið sér til hlés er sagt hluti vandans. SGS hefur lotu verkfalla þann 10. apríl.

Í verkfall stefnir eftir páska

Til verkfalla gæti komið eftir viðræðuslit SGS og SA. Ótrúverðugt að fólk á lágmarkslaunum eigi að standa undir stöðugleikanum, segir formaður SGS. Aldrei þessu vant snúi kröfur ekki að ríkinu vegna svikinna loforða.

Boða til umfangsmikilla verkfallsaðgerða

Starfsgreinasamband Íslands, sem fer með samningsumboð fyrir um ríflega tíu þúsund manns, hefur boðað til umfangsmikilla verkfallsaðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×