Menning

Opna nýja sýningu um hreindýr á Austurlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Sýningin opnar á laugardaginn 6. júní klukkan 13:30.
Sýningin opnar á laugardaginn 6. júní klukkan 13:30. Mynd/Skarphéðinn G. Þórisson
Ný grunnsýning Minjasafns Austurlands opnar formlega í Safnahúsinu á Egilsstöðum næstkomandi laugardag.  

Sýningin ber heitið „Hreindýrin á Austurlandi“ og fjallar um eiginleika hreindýranna, sögu þeirra á Austurlandi, rannsóknir á þeim, veiðarnar, og nýtingu afurðanna, handverk og hönnun.

Í tilkynningu frá safninu segir að sýninguna prýði fjölmargar ljósmyndir af hreindýrum á Austurlandi eftir Skarphéðinn G. Þórisson, helsta sérfræðings landsins um hreindýr, auk dýrgripa á borð við gamlar ljósmyndir af hreindýraveiðum og kvikmyndin „Á hreindýraslóðum“ eftir Eðvarð Sigurgeirsson. Á sýningunni má sjá ýmsa haglega gerða hluti úr hreindýrshornum og hreindýrsskinni.

„Gerð sýningarinnar fór fram í samvinnu við Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum. Fjölmargir lögðu verkefninu lið, bæði einstaklingar og stofnanir. Sýningarhönnuður er Björn G. Björnsson. Um verkefnisstjórn sá Unnur B. Karlsdóttir sagnfræðingur.

Sýningin verður opin í sumar til 31. ágúst alla virka daga frá klukkan 11:30 til 19:00 og um helgar frá 10:30 til 18:00. Vetraropnun auglýst síðar,“ segir í tilkynningunni.

Sýningin opnar á laugardaginn 6. júní klukkan 13:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×