Björguðu gamalli bátsvél frá glötun Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. ágúst 2015 11:15 "Það var gaman að fást við þetta verkefni með góðum vinum,“ segir Gústaf Jónsson. Myndir/Guðmundur Bjarnason „
Mér fannst þetta björgunarstarf skemmtilegt. Ég er hættur að vinna og hef ekkert betra að gera en stússast í einhverju svona,“ segir Gústaf Jónsson, tæknifræðingur í Garðabæ, glaðlega. Þar er hann að tala um björgun June Munktell-bátsvélar af árgerð 1953 sem menn úr Arnfirðingafélaginu í Reykjavík inntu af hendi, ásamt nokkrum heimamönnum á Bíldudal.Vélin og sá hluti bátsins Kára sem hífður var út í sjó og fylgdi henni yfir fjörðinn.Guðmundur Bjarnason, skipstjóri á Árna Friðrikssyni og formaður Arnfirðingafélagsins, tekur undir orð Gústafs. „Þetta var skemmtilegt verkefni sem 3-400 vinnustundir fóru í. Vélin var í bátnum Kára BA 265 sem hefur legið í fjörunni á Krosseyri við Arnarfjörð frá árinu 1984 og var orðinn gjörónýtur.Kári BA 265 var súðbyrðingur, smíðaður úr furu og eik árið 1939 af Gísla Jóhannssyni (1912-1986) Um borð er Jóhann Gunnarsson vélfræðingur.Við sem unnum við björgun vélarinnar munum flestir eftir hljóðinu í henni, þegar Jón Kr., jafnan kenndur við Gróhóla, reri á bátnum. Vélin var eins strokks og það komu hringir upp úr skorsteininum, svipað og sumir gera þegar þeir reykja. Svo þegar hraðinn jókst hurfu hringirnir og eftir það kom eitt og eitt púst annað slagið.“Á leið yfir fjörðinn til Bíldudals aftan í bát Hlyns Björnssonar útgerðarmanns.Gústaf lýsir björgunaraðgerðum nánar. „Við fórum nokkrir vinir vestur í september í fyrra og fengum þokkalegasta veður. Það er enginn vegur að Krosseyri en við vorum fluttir frá Bíldudal á bátum og unnum í fjörunni í þrjá daga. Þar rifum við bátinn utan af vélinni og létum bara bitana og botninn sem hún stóð á fylgja henni, festum flotholt utan á hana og drógum fenginn yfir til Bíldudals.Vélin utan við eina elstu smiðju landsins á Bíldudal.Síðan var vélin flutt suður, sandblásin og lökkuð og sá sem vann mest við hana hér syðra var Jóhann Gunnarsson en margir lögðu hönd á plóg. Hún er orðin gerólík þeim ryðköggli sem við sóttum.“ June Munktell-vélin var eins sílindra, svokölluð glóðarhausvél. Við gangsetningu var toppstykki hennar hitað með mótorlampa þar til það var orðið glóandi. Þá var lyft undir ventlana og stóru og þungu svinghjóli snúið á eins mikla ferð og hægt var. Slegið var undan ventlunum þannig að vélin fór að þjappa og sprengja olíuna sem kom inn á stimpilinn og fór í gang. June Munktell-vélar voru vinsælar eftir stríð og víða í heiminum eru til June Munktell-klúbbar.
Mest lesið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Fleiri fréttir Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Sjá meira