Nýju höfuðstöðvarnar kosta það sama og rekstur útibús í 100 til 150 ár
Ásmundur Einar Davíðsson, þingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður forsætisráðherra, skipar sér þar í sveit með fjölda fólks sem hefur andmælt byggingunni, þeirra á meðal eru sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson, Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnarþingmennirnir Elín Hirst, Frosti Sigurjónsson og Vigdís Hauksdóttir.
Á bloggsíðu sinni setur Ásmundur fyrirhugaða höfuðstöðvabyggingu í samhengi við þjónustuskerðingar bankans, sem er í 97,9% í ríkiseigu, en hann hefur lokað fjölda útibúa á síðustu misserum. Þær lokanir, rétt eins og fyrirætlanirnar við Austurhöfn, voru sagðar vera í hagræðingarskyni og spyr stjórnarþingmaðurinn fyrst svo sé í pottinn búið hvort ekki sé skynsamlegra fyrir bankann að leita að ódýrari lóð en þeirri í miðborg Reykjavíkur.
Sjá einnig: Vill að þjóðin fái að rífa nýjar höfuðstöðvar Landsbankans
„Í umræðu um málið hefur verið bent á hagkvæmari kosti,[innskot blaðamanns: eins og Frosti Sigurjónsson gerði hér] gefum okkur að bankinn gæti komist af með höfuðstöðvar sem kosti hann 2 milljarða í stað þeirra 8 milljarða sem áætlanir gera ráð fyrir. Hvað væri hægt að gera fyrir þá fjármuni?” spyr Ásmundur.
Hann heldur vangaveltunum áfram.
„Á árinu 2012 var t.d. með einni aðgerð ákveðið að loka nokkrum útibúum og áætlaður meðalsparnaður samkvæmt fréttum frá bankanum var 50 milljónir á hvert útibú. Ef Landsbankinn færi hagkvæmari leið varðandi nýjar höfuðstöðvar þá hefði verið hægt að halda opnu einhverju af þeim fjölmörgu útibúum sem bankinn lokaði í nafni hagræðingar í 100-150 ár. Var verið að skerða þjónustu vítt og breitt um landið til að safna fyrir útborgun í nýjar höfuðstöðvar á dýrustu lóð landsins?” spyr hann ennfremur.
Ásmundur lýkur pistil sínum á að hrósa stjórnendum bankans, sem „ hafa heldur dregið í land varðandi fyrirhugaða uppbyggingu,” að sögn þingmannsins og sé það vel. „En verði ráðist í þessa framkvæmd þá er það hrein og klár ögrun við almenning, enda bankinn eigna okkar allra eftir að ríkið endurreisti hann við hrun efnahagskerfisins.“
Tengdar fréttir
Bankastjóri segir Hörpureitinn mjög hagkvæman fyrir Landsbankann
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir bankann vilja vera í nálægð við samkeppnisaðila á fjármálamarkaði og viðskiptavini í miðborginni.
Vill að Landsbankinn greiði meiri arð í ríkissjóð í stað þess að byggja "glæsihöll“
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, gagnrýnir byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans. Hún segist gapandi á kröfunni um ráðstöfun ríkisfjár í hin og þessi gæluverkefni.
Vill að þjóðin fái að rífa nýjar höfuðstöðvar Landsbankans
Kári Stefánsson leggur til að niðurrif hússins verði framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins.
Stjórnarþingmaður segir milljarðana nýtast betur í nýjan Landspítala
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það „vera út í hött“ að ræða byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans við Austurhöfn og kallar eftir alvöru samkeppni á bankamarkaði
Segir anda Hrunsins svífa yfir vötnum
Ómar Ragnarsson er vægast sagt ósáttur við fyrirhugaða byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans sem hann kallar „stærsta gullkálf í sögu norrænna þjóða“
Frosti vill höfuðstöðvarnar í Kópavog
Formaður efnhags- og viðskiptanefndar Alþingis segir að með því að færa höfuðstöðvar Landsbankans í Urðarhvarf megi spara skattborgurum um 5 milljarða króna.
Bankastjóri Landsbankans: Bankinn sparar með nýjum höfuðstöðvum
Steinþór Pálsson segir eigendur hans hafa getað, og muni geta, komið skoðunum sínum á nýjum höfuðstöðvum á framfæri á aðalfundi bankans.