Tónlist

Prince með nýja plötu

Tónlistarmaðurinn Prince sendir frá sér nýja plötu með hljómsveit sinni.
Tónlistarmaðurinn Prince sendir frá sér nýja plötu með hljómsveit sinni. Mynd/Neil Lupin
Tónlistarmaðurinn Prince ætlar að senda frá sér nýja plötu síðar á árinu. Plötuna vinnur hann með hljómsveit sinni, 3rdEyeGirl, og mun hún bera titilinn The Hit & Run Album.

Sveitin sem skipuð er þremur konum ásamt Prince, sendi frá sér sína fyrstu plötu, Plectrumelectrum, á síðasta ári. Meðlimir 3rdEyeGirl sögðu í viðtali við BBC að nýja platan yrði einkar tilraunakennd og sérstaklega fönkí. Þeir segja að á plötunni verði að finna marga svokallaða slagara.

Nákvæm útgáfudagsetning liggur ekki fyrir að svo stöddu. Prince sendi frá sér tvær plötur á síðasta ári, annars vegar Plectrumelectrum með 3rdEyeGirl og hins vegar sólóplötuna Art Official Age.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.