Sipilä útilokar engan flokk við myndun næstu ríkisstjórnar Atli Ísleifsson skrifar 20. apríl 2015 12:37 Juha Sipilä, leiðtogi Miðflokksins. Vísir/AFP
Juha Sipilä, leiðtogi finnska Miðflokksins, segist vilja að búið verði að mynda nýja ríkisstjórn fyrir 1. maí. Sipilä greindi frá þessu á fundi með fréttamönnum fyrr í dag. Miðflokkurinn vann öruggan sigur í kosningunum en hann fékk um 22 prósent atkvæða. Mesta spennan var þó fólgin í þriggja flokka baráttu Þjóðarbandalagsins, Jafnaðarmannaflokksins og Sannra Finna um annað sætið. Þjóðarbandalagið endaði í öðru sæti með um 18 prósent atkvæða en Sannir Finnar þóttu ná góðum árangri í kosningunum og náðu að komast fram úr jafnaðarmönnum á lokasprettinum.Í frétt YLE kemur fram að Sipilä segist ekki vilja gefa upp hvað margir flokkar muni mynda ríkisstjórn með Miðflokknum, en hann ítrekaði að traust og málefni réðu mestu um myndun ríkisstjórnar, ekki einungis úrslit kosninganna. Sipilä segir að eftir fyrstu samtöl sín við aðra flokksleiðtoga sé ekkert sem útiloki einhvern flokk frá næstu ríkisstjórn að svo stöddu. Hann mun eiga fundi með hverjum og einum flokksleiðtoga á næstu dögum. Aðspurður um þjóðernisflokkinn Sannir Finnar segir Sipilä að hann treysti Timo Soini, leiðtoga flokksins, persónulega og að til greina komi að þeir verði í næsti ríkisstjórn landsins. Sipilä verður formlega veitt umboð til stjórnarmyndunar um miðja næstu viku.
Tengdar fréttir Alexander Stubb játar ósigur í finnsku þingkosningunum Miðflokkurinn fær umboð til að mynda ríkisstjórn en mikil leynd hvílir yfir hugsanlegu stjórnarmynstri. 20. apríl 2015 07:00 Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Fleiri fréttir Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Sjá meira
Alexander Stubb játar ósigur í finnsku þingkosningunum Miðflokkurinn fær umboð til að mynda ríkisstjórn en mikil leynd hvílir yfir hugsanlegu stjórnarmynstri. 20. apríl 2015 07:00