Lífið

Strákarnir á bak við Blendin gefa út nýtt app

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Strákarnir í Apollo-X eru ánægðir með Watchbox.
Strákarnir í Apollo-X eru ánægðir með Watchbox. Vísir/Ernir
„Það má alveg segja það að við höfum lært fáránlega mikið á því að hafa þróað Blendin í tvö ár,“ segir Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Appollo-X sem sem gaf á dögunum út sitt þriðja app, Watchbox, og er komið með 10.000 notendur.

Í fyrra gáfu þeir út appið Blendin en hafa síðastliðið hálfa árið einbeitt sér að þróun Watchbox. Davíð segir þá hafa lært mikið af gerð og þróun Blendin og reynslan hafi komið að góðum notum.

Að mörgu þarf að huga við gerð slíks apps og Davíð segir mikilvægt að þau séu einföld og hraðvirk, það sé einn stærsti lærdómurinn sem þeir hafi dregið af gerð Blendin.

„Í fyrsta lagi var varan of flókin, þegar þú komst inn í hana gast þú gert svo margt,“ segir hann en Watchbox er eins konar samskiptamiðill fyrir hópa. Notendur, til dæmis vinnustaðir, geta birt þar myndbönd og myndir sem lifa í appinu í sólarhring. Hann segir það helst hugsað til afþreyingar og einfalt og hraðvirkt í notkun og hugsað sem nokkurs konar platform sem auðveldar samskiptaleiðir milli hópa.

„Við erum búnir að vera með Watchbox í „intense“ betatesti í tvo mánuði. Það er mikilvægt að fólk skilji appið algjörlega í fyrsta skipti sem það notar það og hugsi út í hvernig upplifunin er hjá notanda sem við þekkjum ekki neitt og er kannski staddur í Texas,“ segir hann hress að lokum en appið er hægt að nálgast í Apple App Store.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×