Lífið

Ferskt útgáfupartí á Lemon

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Mikið fjör var í útgáfupartíinu á Lemon.
Mikið fjör var í útgáfupartíinu á Lemon.
Útgáfu Djúsbókar Lemon var fagnað á veitingastaðnum við Suðurlandsbraut í gær. Ljósmyndari Vísis fór á vettvang og smellti myndum af gestum og gangandi. Myndirnar má sjá hér að ofan.

DJ Víðir og dýrið sáu um að skemmta gestum sem gæddu sér á djúsum eftir uppskriftum úr bókinni. 

Á vef Forlagsins, sem gefur bókina út segir:

„Drykkir sem bjarga deginum! Í Djúsbók Lemon er að finna fjörutíu sælkerasafa og þeytinga úr besta fáanlega hráefni, einfalda, frísklega og stútfulla af hollefnum úr ávöxtum, grænmeti, skyri og náttúrulegu kryddi og bragðefnum. Drekktu þá á morgnana eða hvenær sem þú þarft á hollri orku og hressingu að halda og dansaðu skælbrosandi út í lífið!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×