Handbolti

Svíar missa sterkan leikmann

Jakobsson á ferðinni með Svíum.
Jakobsson á ferðinni með Svíum. vísir/afp
Svíar hafa orðið fyrir áfalli í aðdraganda HM því hinn örvhenti leikmaður Flensburg, Johan Jakobsson, getur ekki verið með í Katar vegna meiðsla.

Jakobsson er meiddur á nára og hefur neyðst til þess að draga sig út úr hópnum.

Í hans stað hefur verið kallað á Magnus Persson, leikmann Gummersbach, og liðsfélaga Gunnars Steins Jónssonar.

Svíþjóð og Ísland mætast í æfingaleik í Svíþjóð í kvöld og liðin mætast svo viku síðar í fyrstu umferð á HM í Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×