Lífið

Matt Le Blanc orðinn einhleypur

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Matt Le Blanc og Andra Anders kynntust við tökur á þáttunum Joey.
Matt Le Blanc og Andra Anders kynntust við tökur á þáttunum Joey.
Leikarinn Matt Le Blanc, sem er þekktastur fyrir túlkun sína á karakternum Joey Tribbiani úr Friends-þáttunum, er nú orðinn einhleypur aftur. Samband hans við leikkonuna Andra Anders er búið, en þau voru saman í átta ár. Parið kynntist við gerð þáttanna Joey, sem fjölluðu um líf Joey Tribbiani eftir að vinirnir úr Friends fóru sitt í hvora áttina.

Hér að neðan má sjá þá setingu sem Joey var hvað þekktastur fyrir:



Hér má sjá parið á síðasta ári.
LeBlanc var áður giftur Melissa McKnight í þrjú ár, en þau skildu árið 2005.

LeBlanc er nú búsettur í Lundúnaborg þar sem hann vinnur við gerð gamanþátta sem kallast Episodes og verða í sýningu hjá breska ríkissjónvarpinu BBC.

Hér að neðan má sjá nokkur góð atriði með Joey Tribbiani í Friends.

Þættirnir nutu gríðarlegra vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir að rúmlega tuttugu ár séu frá því að fyrsti þátturinn fór í loftið njóta þeir enn mikilla vinsælda. Þættirnir eru enn sýndir í bandarísku sjónvarpi reglulega. Fyrir tveimur árum var sagt frá því að Comedy Central sýndi allt að sautján þætti á dag með vinunum vinsælu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×