Lífið

Síma Siggu Klingenberg stolið á Tene

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Símanum var stolið á Tenerife. Sigríður átti iPhone 5c síma.
Símanum var stolið á Tenerife. Sigríður átti iPhone 5c síma.
Síma spákonunnar góðkunnu Sigríðar Klingenberg var nýverið stolið á Tenerife, en þangað fór hún í frí.

„Ég grét þetta alveg og ég hengdi upp auglýsingar eins og þegar fólk eða dýr týnast. „Have you seen this iPhone?“ spurði ég þar og lofaði góðum peningaverðlaunum,“ segir Sigríður en leitin bar engan árangur.

Sigríður segist svo sem ekki gráta veraldlegan hlut eins og símann. „Maður sér mest eftir því sem var á símanum, símanúmerum og öðrum gögnum,“ segir hún og bætir við:

„Ég týndi lífinu í rauninni þegar símanum var stolið. Ég ákvað að fá mér Samsung núna. Ég fékk mér högg- og vatnsþéttan síma og er rosalega ánægð.“

Sigríður hvetur fólk til þess að passa vel upp á eigur sínar þegar það fer erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×