Lilleström byrjar með mínus eitt stig vegna fjárhagsvandræða Anton Ingi Leifsson skrifar 4. janúar 2015 20:00
Rúnar Kristinsson og lærisveinar í Lillestrøm munu byrja með mínus eitt stig þegar norska deildin hefst að nýju í byrjun apríl samkvæmt heimildum VG. Lillestrøm sem hefur verið í fjárhagsvandræðum skiluðu ekki inn nauðsynlegum pappírum og liðið mun því byrja með mínus eitt stig á sínu 41. tímabili í efstu deild. Lynne Sollie, formaður félagsins, staðfesti þetta í samtali við norsku vefsíðu Verdens Gang. Hann segir að liðið muni áfrýja niðurstöðunni. „Ég ætla ekki fara nánar í þetta mál, en við trúum því að það sé allt hreint á borðinu hjá okkur annars hefðum við ekki áfrýjað. Síðasti dagurinn til að áfrýja er á morgun svo við munum sjá hvað gerist eftir það," sagði Sollie. Sollie er ekki hræddur um að falla úr deildinni þetta árið. „Það mun ekki gerast. Það væri óásættanlegt. Við erum með gott lið og nýjan góðan þjálfara. Mér finnst við vera góðir. Ekki mikið verri en á síðasta ári og þá lentum við í fimmta sæti." Rune Nordhoug, starfsmaður norska knattspyrnusambandsins, vildi ekkert gefa upp varðandi málið, en sagði að þeir væru á rauðu svæði varðandi peningamál. Rúnar Kristinsson tók við Lilleström í haust og Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður honum til aðstoðar. Finnur Orri Margeirsson er svo á leið til félagsins.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Sjá meira