Handbolti

Egyptar unnu slag Afríkuríkjanna í riðli Íslands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Mohamed Ramadan skoraði átta mörk fyrir Egypta í dag.
Mohamed Ramadan skoraði átta mörk fyrir Egypta í dag. Vísir/AFP
Egyptaland er komið með tvö stig í C-riðli eftir afar öruggan sigur á Alsír, 34-20, í Al Sadd-höllinni á HM í Katar.

Eftir jafnar upphafsmínútur datt botninn úr leik Alsíringa og gengu Egyptar á lagið. Þeir skoruðu tíu af síðustu þrettán mörkum fyrri hálfleiks og gerðu þar með út um leikinn.

Eins og gefur að skilja varð leikurinn aldrei spennandi í síðari hálfleik. Alsíringar gerðu hvað sem þeir gátu til að rétta sinn hlut og beittu ýmsum brögðum til þess. En forystu Egyptanna var aldrei ógnað.

Ísland mætir Alsír í Al Sadd-höllinni í Doha á sunnudag klukkan 16.00 og miðað við frammistöðu þeirra síðarnefndu í dag má leiða líkur á því að Alsír er með slakasta lið riðilsins. Markverðir liðanna vörðu aðeins þrjú skot í fyrri hálfleik og 3-2-1 vörn liðsins var leikin sundur og saman hvað eftir annað af sprækum Egyptum.

Það var frábær stemning í höllinni og stuðningsmenn liðanna fjölmennir - þó var stór meirihluti þeirra á bandi Egypta. Ísland mætir Egyptalandi í lokaumferð riðlakeppninnar og ljóst að um afar mikilvægan leik gæti verið að ræða fyrir bæði lið.

Alsíringar voru sem fyrr segir mjög fljótir að bugast eftir að hafa spilað ágætlega á upphafsmínútunum. En liðið hafði enga getu til að halda úti framliggjandi vörn sinni né heldur hafði það markvörsluna með sér.

Afar fáir tóku af skarið í sókninni. Leikstjórnandinn Khaled Chentout var sá eini sem náði að ógna að utan en helsta vopn liðsins var að leita inn á línuna til Hichem Kaabeche.

Egyptarnir léku á als oddi og leyfðu sér að hvíla leikstjórnandann Eslam Issa og skyttuna Mohamed Elbassiouny lengst af í síðari hálfleik en báðir spiluðu vel í þeim fyrri. 3-2-1 vörn liðsins var öflug og fyrir aftan hana átti Karim Handawy góðan leik í markinu. Issa var markahæstur Egypta með fimm mörk en Kaabeche skoraði sex fyrir Alsíringa.

Egyptar mæta næst Frökkum klukkan 18.00 á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×