Lífið

Hringdu í pabba sinn: Komu út úr skápnum á Youtube

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Bræðurnir grétu báðir þegar þeir tilkynntu pabba sínum að þeir væru samkynhneigðir.
Bræðurnir grétu báðir þegar þeir tilkynntu pabba sínum að þeir væru samkynhneigðir. Mynd/Youtube
Myndband af tveimur bræðrum sem hringja í pabba sinn og koma út úr skápnum gengur nú eins og eldur í sinu um netheima.

Bræðurnir eru þekktir á Youtube. Þeir kalla sig The Rhodes Bros.

Í myndbandinu segja þeir pabba sínum frá því að þeir séu samkynhneigðir. Myndbandið sýnir skýrt hversu erfitt það getur verið að opna sig á þennan hátt. Eftir að hafa sagt pabba sínum fréttirnar ræða bræðurnir við föður sinn á einlægan hátt og hann segist enn elska þá.

Hér að neðan má sjá myndbandið. Fimm milljónir hafa horft á það á einum sólarhring. Bræðurnir eru með rúmlega 100 þúsund áskrifendur á rás sinni á Youtube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×